Bóluefni varði hamstra fyrir veirunni Vésteinn Örn Pétursson skrifar 10. júlí 2020 08:17 Mynd úr safni. Leonardo Fernandez Viloria/Getty
Hamstrar sem hafa verið notaðir sem tilraunadýr í þróun bóluefnis við kórónuveirunni sýkjast ekki af veirunni eftir að hafa verið sprautaðir með bóluefninu. Belgísku vísindamennirnir sem vinna að þróun bóluefnisins líta nú til þess að fara að prófa efnið á mannfólki. Danska ríkisútvarpið greinir frá þessu á vef sínum. Þar segir að einn skammtur bóluefnisins hafi verið nóg til þess að verja hamstrana sýkingu. Tilraunahömstrunum var skipt upp í tvo hópa. Annar var bólusettur, á meðan hinn var það ekki. Síðan var dropum sem innihéldu kórónuveiruna komið fyrir á trýnum dýranna. Bólusettu hamstrarnir sýndu ekki einkenni lungnabólgu við þetta, en þeir óbólusettu gerðu það. Bóluefnið sem hér er fjallað um er byggt á bóluefninu við gulusótt, og er eina mögulega kórónuveirubóluefnið sem byggir á öðru bóluefni. „Bóluefnið við gulusótt hefur sannað virkni sína. Það hefur verið notað í yfir 80 ár og á þeim tíma hafa næstum 800 milljónir verið bólusett með því. Einn skammtur ver þig fyrir gulusótt allt þitt líf,“ hefur DR eftir Johan Neyts, sem fer fyrir teyminu sem reynir nú að þróa bóluefni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Belgía Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira