Þegar Olís-deild kvenna í handbolta hófst á ný í gær eftir jólafrí náðu fjórir leikmenn þeim merka áfanga að spila leik á fjórða mismunandi áratugnum.
Þetta eru þær Hanna G. Stefánsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Martha Hermannsdóttir og Ásdís Sigurðardóttir.
Hanna hefur verið að síðan um miðjan 10. áratug síðustu aldar. Hún lék lengi með Haukum en skipti svo yfir í Stjörnuna.
Hún skoraði átta mörk þegar Stjarnan tapaði fyrir Fram, 25-32, í gær.
Kristín var ekki á meðal markaskorara þegar HK vann öruggan sigur á Aftureldingu, 33-23. Kristín er spilandi aðstoðarþjálfari HK. Hún lék áður með Víkingi, Val og Stjörnunni.
Jafnöldurnar Ásdís Sigurðardóttir og Martha Hermannsdóttir skoruðu eitt mark hvor þegar KA/Þór tapaði fyrir Val, 32-16.
Auk þess að leika fyrir norðan hefur Ásdís einnig leikið með FH og Stjörnunni og Martha var um tíma í herbúðum Hauka.
Hafa spilað leik á Íslandi á fjórum mismunandi áratugum

Tengdar fréttir

Íris Björk með 63% markvörslu í stórsigri Vals á KA/Þór | Spenna á Ásvöllum
Keppni í Olís-deild kvenna í handbolta hófst á ný í dag eftir jólafrí.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fram 25-32 | Framarar byrjuðu nýja árið með stæl
Fram er áfram með tveggja stiga forskot á toppi Olís-deildar kvenna eftir öruggan sigur á Stjörnunni á útivelli.