„Fyrir einhverjum áratugum þá var Þingvallasveit talin afdalasveit í alfaraleið af því að hún lokaðist á veturna, og mjög fáir á ferðinni, en mjög margir á sumrin. En þetta er allt öðruvísi núna,“ segir Kolbeinn Sveinbjörnsson, verktaki og vélvirkjameistari, í þættinum Um land allt á Stöð 2.
Að þessu sinni kynnumst við mannlífi í Þingvallasveit á bæjunum í kringum þjóðgarðinn.

Kolbeinn og eiginkona hans, Borghildur Guðmundsdóttir, byggðu fyrir tólf árum nýbýlið Heiðarás úr landi Skálabrekku undir sig og börnin sín fjögur. Kolbeinn sinnir meðal annars þjónustu við sumarhúsaeigendur og þjóðgarðinn á Þingvöllum meðan Borghildur sinnir ferðaþjónustu í fjórum smáhýsum sem þau leigja út.
Kolbeinn er frá Heiðarbæ en afkomendur langafa hans eru fjölmennasta ættin í Þingvallasveit. Bróðir hans, Jóhannes Sveinbjörnsson, býr á Heiðarbæ eitt, ásamt eiginkonu sinni, Ólöfu Björgu Einarsdóttur, og þremur börnum.

Á Heiðarbæ tvö búa frændur þeirra bræðra, Sveinbjörn Einarsson og sonur hans, Sveinn Ingi. Hann er kominn inn í búskapinn með eiginkonu sinni, Andreu Skúladóttur, en þau eru búin að eignast þrjú börn á fjórum árum.

Brúsastaðir er sá bær sem næst stendur þjóðgarðinum og þar eru einnig að verða kynslóðaskipti. Eftir að hafa búið í Reykjavík í rúm tuttugu ár er Kristrún Ragnarsdóttir að taka við búrekstrinum af föður sínum, Ragnari Jónssyni, sem er búinn að vera bóndi á Brúsastöðum í 57 ár.

Sauðfjárbúskapur er aðalbúgrein sveitarinnar en einnig er stundað þar kjúklingaeldi. Silungsveiðin í vatninu er drjúg búbót. Því kynnumst við í Mjóanesi þar sem við fylgjumst með þeim Jóhanni Jónssyni og Rósu Bachmann Jónsdóttur vitja um silunganetin.
Þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 á mánudagskvöld klukkan 19.10. Hér má sjá sýnishorn: