Vigfús var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Suðurlands. Ríkissaksóknari áfrýjaði dómnum úr héraði og var dómur kveðinn upp í Landsrétti í desember 2019. Héraðssaksóknari hafði farið fram á átján ára fangelsi yfir Vigfúsi.
Vigfús leitaði leyfis til að áfrýja dómi Landsréttar skömmu eftir að dómurinn féll í desember. Í úrskurði Hæstaréttar kemur fram að lögmaður hans hafi m.a. borið því fyrir sig að skera þyrfti úr um mörk ásetnings og gáleysis í málinu, auk þess sem niðurstaða Landsréttar um ásetning Vigfúsar til manndráps hafi verið á skjön við réttarframkvæmd og skrif fræðimanna. Dómur Landsréttar sé jafnframt bersýnilega rangur að efni til.

Fólkið sem lést í eldsvoðanum var á efri hæð hússins þegar eldurinn kom upp. Eldurinn breiddist hratt um húsið sem varð fljótt alelda. Slökkvistarf gekk erfiðlega vegna mikils hita og elds og gátu reykkafarar til að mynda ekki kannað efri hæð hússins og komist þannig að fólkinu sem þar var. Sama dag og eldurinn kom upp voru Vigfús og kona handtekin vegna gruns um að þau tengdust eldsvoðanum.