Eins og fór væntanlega ekki fram hjá neinum hélt sigurganga Hildar Guðnadóttur áfram um helgina og á sunnudag vann hún BAFTA verðlaun. Hildur hefur sópað að sér verðlaunum síðustu mánuði fyrir tónlist sína. BAFTA verðlaunin fékk hún fyrir tónlistina í kvikmyndinni um Jókerinn.
Vogue valdi Hildi eina af 20 best klæddu stjörnum kvöldsins á BAFTA í gær. Á listanum með henni voru meðal annars Kate Middleton, Zoë Kravitz, Charlize Theron, Rooney Mara, Renée Zellweger og Margot Robbie. Listann má finna á vef Vogue.

BAFTA eru þriðju stóru verðlaunin sem Hildur vinnur í ár en hún hefur nú þegar unnið Golden Globe fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker og Grammy-verðlaun fyrir tónlistina í þáttunum Chernobyl. Einnig hefur hún unnið nokkur smærri verðlaun eins og Critics' Choice Awards. Hildur er talin líkleg til þess að vinna Óskarsverðlaun og væri hún þá fyrst Íslendinga til þess að hljóta þann heiður.
Hildur hefur vakið athygli á verðlaunahátíðum í Bretlandi og Bandaríkjunum síðustu mánuði en hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi.






