Seinni bylgjan: „Þið gerðuð þær svona reiðar“ Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2020 21:30 Framarar gera ekki annað en að fagna sigrum í vetur. vísir/Daníel
Ágúst Þór Jóhannsson og Arnar Pétursson fóru yfir 15. umferðina í Olís-deild kvenna í handbolta í Seinni bylgjunni með Henry Birgi Gunnarssyni í kvöld. „Framliðið er auðvitað búið að vera stórkostlegt á þessari leiktíð. Ég tala um að þær séu vægðarlausar en þær spila bara eins og þær séu reiðar,“ sagði Henry Birgir þegar topplið Fram, og risasigur þess á KA/Þór fyrir norðan, var til umfjöllunar. „Þær voru það sérstaklega í þessum leik. Þær bara spiluðu þetta vel. Þær keyra náttúrulega alltaf en mér fannst líka sóknarleikurinn ofboðslega beittur hjá þeim,“ sagði Arnar. Henry benti Ágústi, þjálfara meistaraliðs Vals, á að með því að vinna alla bikarana á síðustu leiktíð hefðu Valskonur gert Framkonur svona „reiðar“: „Það getur vel verið að það hafi kveikt svona í þeim. Það sýnir bara að þetta eru alvöru íþróttamenn í þessu liði. Framliðið er auðvitað bara feykilega öflugt eins og alþjóð veit, hefur spilað lengi saman og spilar mjög góðan handbolta. Það er góður taktur hjá þeim bæði varnarlega og sóknarlega og í raun hvergi veikan blett að finna í þessu liði,“ sagði Ágúst. Sérfræðingarnir horfðu svo sérstaklega á frammistöðu Perlu Ruthar Albertsdóttur sem skoraði tíu mörk úr tíu skotum í leiknum. Þáttinn í heild sinni, þar sem fjallað er um alla leikina í 15. umferð, má sjá hér að neðan. Klippa: Seinni bylgjan: 15. umferð kvenna
Olís-deild kvenna Seinni bylgjan Mest lesið Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Íslenski boltinn Hvergerðingar í úrslit umspilsins Körfubolti „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Körfubolti KA Íslandsmeistari og tók alla titlana Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar Íslenski boltinn Embla og Eva Björk í ham þegar Stjarnan komst yfir Handbolti Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Adam Ægir hefði alveg mátt gefa á mig“ Fótbolti „Veit ekki hversu oft hann fór í stöngina eða slánna“ Sport Tryggvi Evrópumeistari með Bilbao Basket Körfubolti Fleiri fréttir Embla og Eva Björk í ham þegar Stjarnan komst yfir Orri rólegur þegar Sporting tapaði fyrri leiknum Aron tryggði Veszprém jafntefli í Magdeburg Óvænt tap hjá Kolstad en Dana og Óðinn með allt á hreinu „Svona er úrslitakeppnin“ ÍR í undanúrslit eftir sigur með minnsta mun Elvar Örn frábær þegar Melsungen marði sigur Uppgjörið: Afturelding - Valur 31-23 | Mosfellingar jöfnuðu metin með stæl Anton og Jónas dæma stórleikinn í Ungverjalandi Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Sjá meira