Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur fer fram næsta miðvikudag kl 17:30 í Akóges salnum Lágmúla 4 3. hæð en þá fer einnig fram kosning til stjórnar.
Á fundinum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf ásamt kosningum til stjórnar og fulltrúaráðs. Formaðurinn er sjálfkjörinn en kosið verður um sæti þriggja stjórnarmanna til tveggja ára. Fimm félagsmenn í fulltrúaráð eru sjálfkjörnir. Starfsfólk og stjórn SVFR hvetja félagsmenn til að fjölmenna á fundinn en rétt til setu á fundinum hafa allir félagsmenn sem eru skuldlausir við félagið. Atkvæðisrétt hafa einungis félagsmenn sem eru 18 ára og eldri.
Opnað verður fyrir utankjörfundaratkvæði miðvikudaginn 19. febrúar nk. á skrifstofu félagsins. Kjörfundur er frá kl. 11.00 – 16:00 hvern dag. Frestur til að skila inn untankjörfundaratkvæði er til lokun skrifstofu 25. febrúar kl. 16:00. Þessi framboð bárust og hvetjum við félagsmenn til að kynna sér frambjóðendur. Frekari kynningu frabjóðenda sem hafa sent inn slíka kynningu er hægt að sjá með því að smella á viðeigandi hnapp hér að neðan.
Framboð til formanns
Jón Þór Ólason
Framboð í stjórn
Halldór Jörgensson
Hrannar Pétursson
Rögnvaldur Örn Jónsson
Trausti Hafliðason
Framboð í fulltrúaráð
Gylfi Gautur Pétursson
Jóhann Steinsson
Jónas Jónasson
Ólafur E. Jóhannsson
Reynir Þrastarson
Nánari kynning á frambjóðendum til stjórnar er að finna á www.svfr.is