Nú er deit menningin hér á landi oft mjög rafræn. Samfélagsmiðlar og stefnumótaforrit spila stórt hlutverk þegar fólk byrjar að deita einhvern nýjan. Samskiptin eru oft eingöngu í gegnum símann, sem gefur ákveðna fjarlægð líka. Þetta velja margir að nýta sér og slíta samböndum eða samskiptum með því að senda skilaboð.
Það er eitt að vera hafnað, en annað að fá skilaboð um sambandsslit. Með því að hætta með einhverjum rafrænt, er hægt að forðast ákveðna ábyrgð. Þetta er auðveldara fyrir þann sem er að slíta samskiptunum en getur verið enn sárara fyrir þann sem fær fréttirnar í skilaboðum. Út frá þessu kemur spurning okkar að þessu sinni. Hefur þú hætt með einhverjum í gegnum textaskilaboð? Hefur einhver hætt með þér í gegnum skilaboð? Endilega svaraðu könnuninni hér fyrir neðan.
