Mýrdalshreppur hefur verið eitt allra helsta aðdráttarafl ferðamanna síðustu ár enda margar fallegar náttúruperlur í sveitarfélaginu. Mikil uppbygging hefur t.d. verið í þorpinu í Vík, sem tengist ferðaþjónustu en nú er það allt farið, það kemur engin ferðamaður á staðinn.
„Ég dáist að því hvað fólk heldur ró sinni og það eru allir að reyna að gera eins vel og þeir geta út frá stöðunni, sem við erum í en auðvitað gengur þetta ástandi ekki lengi. Það er alveg sama hvert litið er, hvort þetta er bleikjueldi, bílaviðgerðir eða veitingahús, það er núll innkoma,“ segir Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri Mýrdalshrepps.

„Já, það er bara óhætt að segja það, nú er Snorrabúð stekkur, það er varla hræða á ferð nema bara heimamenn.“
Ekkert kórónusmit hefur komið upp í Mýrdalshreppi enda segir Þorbjörg heimamenn rólega og haldi sig bara heima, enda þori fólk ekki annað en að hlýða Víði.
Sveitarstjórinn vill sjá í þessu ástandi að það komi meiri peningur inn í framkvæmdasjóð ferðamála og endurskoða þær umsóknir sem þar liggja því það hafi verið fullt af umsóknum, m.a. úr Mýrdalshreppi, því þarf sé fullt af störfum, sem fengu ekki náð fyrir augum nefndar sjóðsins.
Þá segir Þorbjörg að það sé nauðsynlegt fyrir fyrirtæki landsins að fá meiri stuðning frá ríkisvaldinu í aðstæðum sem þessum.
„Við ætlum okkur að koma standandi niður úr þessu en til þess þurfum við aðstoð stjórnvalda. Eins og núna erum við að undirbúa okkur við það að bjóða Íslendinga velkomna til okkar í sumar. Hér er ótal afþreying fyrir utan fallega náttúru,“ segir Þorbjörg.
44% íbúa í Mýrdalshreppi eru útlendingar sem hafa unnið í ferðaþjónustu. Þorbjörg segir að flestir haldi enn ráðningasambandi við sín fyrirtæki og fari hlutaleiðina. Reiknað er með að atvinnuleysi í sveitarfélaginu fari upp í 34% núna í apríl. Þrátt fyrir það er sveitarstjórinn bjartsýn á framhaldið.
„Já, ég er bjartsýn að eðlisfari og það hjálpar mér helling. Ég held að það þýði ekki að leggjast í einhverja sorg og sút, við þurfum að bretta upp ermar ef við erum ákveðin í að komast standandi niður úr þessu þá hjálpar það okkur alveg helling en við þurfum aðstoð við það.“