Laundóttir Alberts II fer fram á sömu réttindi og titla og systkinin Atli Ísleifsson skrifar 11. september 2020 08:01 Delphine Boël mætti fyrir áfrýjunardómstól í Brussel í morgun. Getty
Belgíska listakonan Delphine Boël vonast nú til að dómstóll í landinu muni veita henni sömu réttindi og titla og önnur börn Alberts II, fyrrverandi Belgíukonungs. Konungurinn viðurkenndi í janúar síðastliðnum að hafa á sínum tíma eignast Boël utan hjónabands eftir að hafa þrætt fyrir faðernið í um áratug. Hin 52 ára Boël hefur nú leitað til áfrýjunardómstóls í Brussel til að fá sínu framgengt. Móðir Boël, Sybille de Selys Longchamps barónessa, fullyrðir að hún hafi átt í ástarsambandi við Albert II konung í átján ár, frá 1966 til 1984, það er nokkru áður en hann tók við krúnunni árið 1993. Sögur um að konungurinn hafi eignast barn utan hjónabands komu fyrst fram opinberlega í ósamþykktri ævisögu um Paolu drottningu árið 1999. Boël fullyrti svo fyrst í viðtali árið 2005 að konungurinn væri faðir sinn. Albert II afsalaði sér krúnunni árið 2013 vegna heilsubrests.Getty Albert II afsalaði sér krúnunni árið 2013 og það var fyrst þá – eftir að hann missti friðhelgi – sem Boël leitaði til dómstóla. Hinn 86 ára Albert II á þrjú önnur börn; Filippus, sem nú er konungur landsins, Laurent prins og Astrid prinsessu. Lögmaður Alberts segir að það sé ekki dómstóla að veita fólki titilinn „prinsessa“. Slíkt verði einungis gert með konunglegri tilskipun.
Belgía Kóngafólk Mest lesið Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Innlent Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Erlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Innlent Máttu ekki banna fréttamenn AP Erlent Fleiri fréttir Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Sjá meira