Klukkan 17:46 í gærkvöldi var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um rán í Kópavogi. Þar höfðu tveir menn ráðist á mann, ógnað honum með eggvopni og stolið bíl hans.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem segir jafnframt að um fjörutíu mínútum síðar var síðan tilkynnt um bílinn á Breiðholtsbraut þar sem honum var ekið aftan á annan bíl og svo af vettvangi.
Um nóttina, eða upp úr klukkan hálftvö, var síðan tilkynnt um tvo menn sem voru að stela vörum í búð í Kópavogi. Hafði starfsmanni verslunarinnar verið hótað þegar hann reyndi að hafa afskipti af mönnunum.
Mennirnir komu aftur inn í verslunina þar sem þeir héldu að þeir hefðu týnt bíllyklum og ógnuðu þá starfsmanni með eggvopni.
Skömmu síðar kom lögregla á vettvang og handtók mennina. Voru þarna sömu menn á ferð og höfðu ráðist á mann og stolið bíl hans fyrr um kvöldið. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn máls.
Upp úr klukkan hálfsex í gærkvöldi var síðan ofurölvi maður handtekinn í hverfi 104. Var maðurinn til ama við sparkvöll þar sem börn voru að leik. Hann gat hvorki framvísað skilríkjum né gefið upp kennitölu og var hann vistaður í fangageymslu lögreglu vegna ástands.
Skömmu eftir klukkan hálfsjö var tilkynnt um brot á sóttkví í Kópavogi. Tveir erlendir verkamenn sem eiga að vera í sóttkví til 11. október sagðir hafa verið á ferðinni meðal fólks. Málið er í skoðun hjá lögreglu.
Þá var tilkynnt um eignaspjöll og rúðubrot í austurbænum klukkan 19:44. Var gerandi í mjög annarlegu ástandi handtekinn nærri vettvangi og var hann með skurð á hendi sem blæddi úr.
Farið var með manninn á slysadeild þar sem saumuð voru nokkur spor í hönd hans. Hann var síðan vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn máls.
Einnig voru nokkrir ökumenn stöðvaðir af lögreglu í gærkvöldi og nótt grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis.