Forsala á jóladagatölum kynlífstækjaverslunarinnar Hermosa.is hófst fyrr í mánuðinum. Viðtökurnar eru frábærar og nú er mjög takmarkað magn eftir. Kaupendur verða ekki fyrir vonbrigðum segir Kristín Björg Hrólfsdóttir, eigandi verslunarinnar en hún lagði mikinn metnað í að finna dagatöl sem stæðust hörðustu gæðakröfur.

„Síðasta ár ákváðum við að sleppa því að selja dagatöl þar sem að við fundum engin sem að uppfylltu þau gæði sem að Hermosa vill standa fyrir. En nú í ár erum við með í forsölu ein flottustu og veglegustu dagatöl sem við höfum séð,“ segir Kristín. Dagatölin koma í tveimur útgáfum, Premium og Classic.
„Það sem að gerir bæði dagatölin frábrugðin mörgum öðrum er að þau innihalda ekki eingöngu vörur frá einum framleiðanda og vörurnar eru ekki sérstaklega búnar til fyrir dagatölin, heldur voru valin tæki sem hafa sannað sig og sett í einn stóran pakka. Það má til dæmis nefna Womanizer sogtækið og We-Vibe paratækið.“

Dagatölin eru hugsuð fyrir gagnkynja pör. Þau innihalda unaðstæki fyrir pör, hana og hann en gætu einnig verið fyrir tvær konur þar sem aðeins eru 3 vörur af 24 ætlaðar körlum. Dagatölin innihalda allt frá titrurum og sogtækjum til nuddolíu og leðursvipu.

„Ég mæli klárlega með að öll pör prufi að fá sér jóladagatal, það er svo gaman að hafa eitthvað til að hlakka til og finna fyrir spennunni sem myndast við að prufa ný tæki með maka,“ segir Kristín.
Gott að losa um jólastressið
„Algengt er að fólk kaupi dagatalið sem gjöf fyrir makann sinn. Dagatalið getur verið frábær leið til þess að krydda aðeins upp á skammdegið. Jólin einkennast oft á tíðum af hraða og stressi og því er gott að missa ekki sjónar á því hverju við erum að fagna. Því er gott er að taka pásu frá amstri dagsins og skapa minningar með makanum. Hugsanlega gefst ekki tími til þess að opna dagatalið á hverjum degi, þá er alveg hægt að opna tvo glugga í einu eitt kvöldið eða jafnvel láta dagatalið endast aðeins lengur inn í janúar því mörgum finnst sá tími ársins erfiður. En dagatalið mun klárlega lýsa skammdegið upp fyrir ykkur og jafnvel gera sambandið nánara og sterkara,“ segir Kristín.

Premium útgáfan inniheldur múffur, sogtæki frá Womanizer, titrara, geggjað paratæki frá We-vibe og alvöru leðurvörur. Takmarkað magn er eftir af Premium enda hafa flestir forpantað þau.
Classic útgáfan inniheldur einnig fjölbreytt úrval af vörum fyrir hann, hana og pör en frá minna þekktum vörumerkjum. Bæði dagatölin eru á frábæru verði þegar tekið er mið af hefðbundnu verði hverrar vöru.