Slæm staða margra sveitarfélaga vegna kórónuveirufaraldursins kallar á dýpri umræðu en felst í bráðalausnum að mati fjármálaráðherra. Formaður Samfylkingarinnar hvetur til þess að ríkissjóður hlutist til um lán á betri kjörum til þeirra en þau geti sjálf aflað.
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun að sveitarfélögin hefðu orðið fyrir gríðarlegu tekjufalli og auknum kostnaði í faraldrinum. Þeim væri hins vegar þröngur stakkur sniðinn til að auka útgjöld.

„Álag á nærþjónustu eykst gríðarlega í þessu erfiða árferði. Við erum að tala um leikskóla, skóla, öldrunarþjónustu, málefni fatlðra og fleira. Nú þarf að verja þetta af alefli,“ sagði Logi. Útsvarstekjur væru minnkandi og framlög úr jöfnunarsjóði færu lækkandi.
Logi spurði Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra af því hvort ríkissjóður gæti ekki hlutast til um lán eða lánalínur á betri kjörum en sveitarfélögin ættu kost á.

Fjármálaráðherra sagði umræðuna mikilvæga en hér á landi hefði verið lögð mikil áhersla á sjálfstæði sveitarfélaga. Útgjöld sveitarstjórnarstigsins hér af útgjöldum hins opinbera væru mun lægra hér en á hinum Norðurlöndunum. Afleiðingin væri að þegar vel áraði fleyttu sveitarfélögin rjóman en þegar illa áraði réðu þau varla við breytinguna.
„Þannig að ég tel að sú staða sem er upp komin, meðal annars í samtali við sveitarfélögin, kalli ámiklu dýpri spurningar heldur en bara þáhvort ríkið ætli núna að reiða fram milljarða tugi til að leysa vanda til skamms tíma. Þetta kallar ámiklu dýpri spurningar en það. En að sjálfsögðu ætlar ríkið að standa við það sem við höfum sagt. Við höfum nýlega gengið frá samkomulagi við sveitarfélögin um að standa með þeim,“ sagði Bjarni Benediktsson.