Í fréttatímanum verður einnig rætt við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar telur forgangsröðun í bólusetningu skringilega þar sem 60 ára og eldri eru í sjötta sæti á forgangslista. Hann leggur til að 85 ára og eldri verði bólusettir fyrst því þeir séu í mestri hættu ef þeir veikjast.
Þá segjum við frá þungu hljóði í íbúum á Kirkjubæjarklaustri eftir að fréttist að einu matvöruversluninni á staðnum yrði lokað um áramótin. „Kjaftshögg fyrir samfélagið“, segir sveitarstjóri Skaftárhrepps sem rætt er við í hádegisfréttum.
Þetta og fleira í hádegisfréttum á slaginu tólf.