Í fyrsta þætti útbjó Eva Laufey graflax og graflaxsósu í forrétt. Fyrir aðalréttin eldaði hún lambarifjur með öllu tilheyrandi, kartöflugratín og rauðvínssósu. Í eftirrétt varð hinn klassíski Ris a la Mande fyrir valinu. Auk þess bakaði hún rjómaostatoppa og gaf hugmynd að súkkulaðipinnum sem eru frábær gjöf á aðventunni.

Forréttur
Graflax
- ·800 g lax, beinlaus
- ·200 g gróft salt
- ·200 g sykur
- ·8 piparkorn
- ·2 msk vatn
- ·1 búnt dill
- ·½ sítróna
Aðferð:
- Setjið sykur, salt, piparkorn, vatn og handfylli af dilli í matvinnsluvél og maukið fínt.
- Leggið laxaflakið í eldfast mót eða beint í plastfilmu, roðhliðin snýr niður. Stráið saltblöndunni jafnt yfir fiskinn og saxið restina af dillinu og setjið ofan á. Gott er að rífa börk af hálfri sítrónu og setja yfir í lokin. Pakkið laxinum vel inn í plastfilmu eða setjið plastfilmu yfir eldfasta mótið. Setjið eitthvað þungt ofan á til dæmis mjólkurfernu og geymið laxinn í kæli í 24 – 48 klst.
- Skolið laxinn með köldu vatni eftir þann tíma og þerrið aðeins áður en þið berið hann fram með fersku dilli og ljúffengri sósu.
Graflaxsósa
- 1 dós sýrður rjómi 36%
- 2 msk Dijon sinnep
- 1 msk hlynsíróp
- handfylli ferskt dill
- Salt og pipar
- 1 msk sítrónusafi
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Smakkið ykkur gjarnan til og bragðbætið að vild.
- Best er að geyma sósuna í kæli í 30 mínútur áður en hún er borin fram.

Aðalréttur
Lambarifjur með öllu tilheyrandi
- 1 kg lambarifjur
- Salt og pipar
- 2 msk smjör
- 2 msk dijon sinnep
- Handfylli steinselja
- 2 msk saxað timían
- 2 msk saxað rósmarín
- 1 hvítlauksrif
- 1 ½dl brauðrasp
- 1 msk ólífuolía
Aðferð:
- Útbúið kryddhjúpinn með því að setja steinselju, timían, rósmarín, hvítlauksrif, brauðrasp og ólífuolíu í matvinnsluvél og maukið vel.
- Skolið og þerrið lambakjötið, kryddið með salti og pipar og nuddið upp úr olíu.
- Steikið á öllum hliðum þar til kjötið hefur brúnast vel, bætið smjöri út á pönnuna og hellið duglega yfir kjötið á meðan þið steikið kjötið.
- Færið kjötið af pönnunni, penslið kjötið með dijon sinnepi og veltið því næst upp úr kryddhjúpnum.
- Því næst fer kjötið inn í ofn við 200°C í 30 – 35 mínútur.
- Leyfið kjötinu að hvíla í 7- 10 mínútur áður en þið berið það fram.
Kartöflugratín
- 1 kg bökunarkartöflur
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk smjör
- Salt og pipar
- Ferskt timían
- ½ - 1 tsk nýmöluð múskathneta
- 1 kjúklingateningur
- 150 g gratínostur
- 150 g rifinn Tindur
- 500 ml rjómi
Aðferð:
- Flysjið kartöflurnar og skerið þunnt.
- Smyrjið eldfast form með smjöri, rífið niður hvítlauk og nuddið hvítlauknum í formið.
- Raðið kartöflunum í eldfast móti, saltið og piprið á milli laga auk þess sem þið sáldrið fersku timían yfir og rífið smávegis af múskathnetu. Myljið kjúklingateninginn yfir og sáldrið smávegis af ostinum á milli laga og endurtakið leikinn þar til að þið eruð komin með lagskipt gratín.
- Hellið rjómanum yfir gratínið og bakið við 180°C í 50 – 55 mínútur, leyfið gratíninu að standa í smá stund áður en þið berið það fram.
Rauðvínssósa
- Ólífuolía
- 1 laukur
- 2 gulrætur
- 5 sveppir
- 1 stk anísstjarna
- 8 piparkorn
- 4 dl nautasoð
- 3 dl rauðvín
- 100 g smjör
Aðferð:
- Skerið lauk, sveppi og gulrætur í litla bita, steikið upp úr olíu í smá stund.
- Bætið anísstjörnu, piparkornum, rauðvíni og nautasoði út í pottinn og sjóðið þar til það eru ca. 2 dl eftir og takið soðið af hitanum, sigtið sósuna og bætið því næst smjörinu saman við í nokkrum pörtum.
- Berið sósuna strax fram.

Eftirréttur
Ris a la Mande
Grauturinn - Uppskrift
- 2 ½ dl grautargrjón
- 1 L nýmjólk
- Fræin úr einni vanillustöng
- Salt á hnífsoddi
- 70 g hvítt súkkulaði
Aðferð:
- Penslið pott með smá smjöri en það kemur í veg fyrir að grjónin og mjólkin brenni við.
- Hellið mjólkinni í pottinn og leyfið suðunni að koma upp, bætið þá grjónunum út í pottinn og hrærið vel í.
- Kljúfið vanillustöngina í tvennt, skafið fræin innan úr og setjið í pottinn.
- Sjóðið grautinn við vægan hita í 35 – 40 mínútur. Hrærið af og til í pottinum, það er mjög auðvelt að brenna grautinn við og þess vegna þarf að fylgjast vel með.
- Þegar grauturinn er tilbúinn bætið þið smátt söxuðu hvítu súkkulaði saman við og hrærið, súkkulaðið bráðnar í grautnum og gefur honum einstaklega fallega áferð.
- Kælið grautinn mjög vel áður en þið útbúið Ris a la Mande. Best er að gera grautinn deginum áður og þá kólnar hann í rólegheitum yfir nótt.
Ris a la Mande
- 1 skammtur grautur (uppskriftin hér að ofan)
- 500 ml rjómi
- 2 msk flórsykur
- 100 g möndlur, hakkaðar og ristaðar
- Góð sósa, til dæmis söltuð karamellusósa eða kirsuberjasósa
Aðferð:
- Þeytið rjóma og bætið flórsykrinum saman við.
- Blandið rjómablöndunni saman við grautinn með sleikju.
- Hakkið möndlur, ristið þær og kælið. Þegar þær eru kaldar þá bætið þið þeim við grautinn, mér finnst ágætt að setja 70% í grautinn en geyma 30% af möndlunum til skrauts.
- Hellið nú grautnum í fallega skál eða skálar. Hellið góðri sósu yfir og sáldrið ristuðum möndluflögum yfir áður en þið berið eftirréttinn fram.

Bakstur
Rjómaostatoppar með hvítu súkkulaði
- 220 g smjör
- 200 g hreinn rjómaostur
- 225 g púðursykur
- 225 g sykur
- 2 egg
- 2 tsk vanillusykur
- 600 g hveiti
- ½ tsk salt
- 3 tsk kanill
- 1 tsk lyftiduft
- 4 msk mjólk
- 100 g hvítt súkkulaði
Til að rúlla deiginu í:
- 100 g sykur
- 2 tsk kanill
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C. Hrærið smjöri, rjómaosti og sykri saman þar til blandan verður kremkennd.
- Bætið eggjum út í, einu í einu og hrærið vel á milli.
- Setjið þurrefnin saman við deigið og hrærið vel. Hellið mjólkinni út í deigið í nokkrum skömmtum. Kælið deigið í 30 mínútur eða lengur.
- Mótið litlar kúlur með teskeiðum, rúllið upp úr kanilsykri og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Bakið við 180°C (blástur) í 13 – 15 mínútur.
- Bræðið hvítt súkkulaði og hellið yfir kökurnar í lokin.

Jólamatargjöf
Súkkulaðipinnar
- 300 g suðusúkkulaði
- 1 msk kókosolía
- Skraut að eigin vali, til dæmis bismark brjóstsykur, sykurpúðar og jólastafir.
- Pinnar, ég notaði kökupinna
Aðferð:
- Bræðið súkkulaði og kókosolíu saman í potti við vægan hita.
- Hellið súkkulaðinu í til dæmis bollakökuform, skreytið með sælgæti og setjið pinna ofan í. Kælið mjög vel þar til súkkulaðið er orðið stíft.
- Hitið mjólk, setjið einn pinna ofan í bolla og fyllið upp með heitri mjólk. Hrærið stöðugt í og þá eruð þið komin með ljúffengan bolla af heitu súkkulaði.
- Frábær gjöf!
