Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að áætlunarflug á markaðslegum forsendum milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja hafi lagst af í september vegna minni eftirspurnar sem rekja mætti til heimsfaraldursins.
Haft er eftir Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra að það sé afar þýðingarmikið að tryggja lágmarksþjónustu á flugleiðinni á meðan ekki séu markaðslegar forsendur í flugi.
„Við vonum að með vorinu taki ferðaþjónusta við sér að nýju og aftur verði hægt að fljúga með reglubundnum hætti til Eyja,“ segir Sigurður Ingi.
Gerð verðkönnun
Í tilkynningunni segir að gerð hafi verið verðkönnun hjá þremur flugrekendum - Erni, Icelandair og Norlandair. „Öll félögin bjóða þegar upp á áætlunarflug og nota bókunarkerfi með tengingu við Loftbrú, sem veitir íbúum landsbyggðarinnar 40% afslátt á flugfargjöldum.
Hægt verður að framlengja samninginn við Icelandair um tvær vikur í senn ef þörf krefur. Sömuleiðis má fella samninginn niður án fyrirvara hefjist áætlunarflug á markaðslegum forsendum að nýju innan gildistíma hans. Allar tekjur Icelandair af miðasölu og fraktflutningum á flugleiðinni munu lækka greiðslur vegna samningsins.“