Fjögur af sex húsum Tækniminjasafns Austurlands skemmdust í aurskriðunum. Gríðarlegar og óbætanlegar menningarminjar hurfu samhliða því en forsvarsmenn safnsins höfðu mestar áhyggjur af ljósmyndum sem geymdar voru í læstum öryggisskáp á safninu. Um var að ræða hátt í átta þúsund ljósmyndir, sumar meira en hundrað ára gamlar. Björgunarsveitin Ísólfur fann ljósmyndirnar á Þorláksmessu, eftir að hafa grafið öryggisskápinn upp úr rústunum. Ljósmyndirnar eru óskemmdar.
Hlé hefur verið gert á hreinsunarstarfi í bænum nú fram yfir jól, að sögn Kristjáns Ólafs Guðnason, yfirlögregluþjóns á Austurlandi. „Við gerum ráð fyrir að það liggi niðri núna yfir jóladagana og byrji að líkindum ekki aftur fyrr en á mánudag svona miðað við veðurspá eins og hún lítur út,“ segir Kristján.
Hafið þið einhverjar áhyggjur af fokhættu?
„Það er búið að fergja það mesta og vinnan fram að hátíðum fór að mestu í það að tryggja stöðuna, tryggja vettvanginn, hvað þetta varðar. Þannig að vonum að það muni sleppa,“ svarar Kristján.
Hann segir að enn liggi ekki fyrir hvenær fólk fái að snúa aftur til síns heima, en vonar að línur fari að skýrast eftir helgi. Bæði hefur rignt og hlýnað á Seyðisfirði í dag og í gær, sem hann segir ákveðið áhyggjuefni en að fylgst sé náið með stöðunni.
„Þetta er ákveðið áhyggjuefni og við hefðum gjarnan viljað vera laus við rigninguina en það mun samkvæmt spá, þá mun kólna aftur á mánudag og þá vonandi fer þetta hratt batnandi aftur. En staðan er viðkvæm eins og hún er núna,“ segir Kristján.