Róbert Daði Sigurþórsson, Fylki, varð í dag fyrsti Íslandsmeistarinn í eFótbolta eftir nokkuð öruggan 4-2 sigur á Aroni Þormari Lárussyni, einnig Fylki, í úrslitaleik keppninnar.
Róbert Daði er vel að titlinum kominn en hann vann Tind Örvar Örvarsson, Elliða, samanlagt 7-0 í undanúrslitum áður en hann lagði Aron Þormar í úrslitum. Aron hafði lagt Leif Sævarsson, LFG, af velli í undanúrslitum, samanlagt 4-3.
Þeir Róbert Daði og Aron Þormar eru liðsfélagar í Fylki og leika saman í tvíleiðaleik. Fyrir leik þeirra í dag var Aron Þormar talinn líklegri til afreka en hann er efstur Íslendinga á heimsleista FIFA.
Leiknir voru tveir leikir í undanúrslitum og úrslitum. Eftir fyrri úrslitaleikinn var staðan 2-1 Aroni Þormari í vil en Róbert Daði kom til baka í síðari leiknum og vann öruggan 3-0 sigur.
Alls tóku 50 manns þátt í mótinu sem fór af stað 1. apríl. Var þetta fyrsta Íslandsmótið í eFótbolta og var sýnt beint frá mótinu hér á Vísi.
Ljóst er að mótið heppnaðist einkar vel og verður forvitnilegt að sjá hvernig íþróttin mun þróast á komandi misserum.
Róbert Daði Sigurþórsson, Fylki, er fyrsti Íslandsmeistarinn í eFótbolta!
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) April 18, 2020
Hann bara sigurorð af Aroni Þormari Lárussyni, Fylki, í úrslitaleiknum, 4-2 samanlagt.
Til hamingju Róbert Daði!#eFótbolti pic.twitter.com/qfe5SiiLvn