Kvikmyndagerðamaðurinn Garpur Elísabetarson er lagður af stað í einstakt ferðalag um landið. Dag tvö í ferðadagbók hans má finna hér fyrir neðan.
Í dag má segja að hringferðin í kringum Ísland hafi tekið af stað. Ég gisti á Hótel Rangá þar sem var hugsað mjög vel um mig.
Ég byrjaði á því að kíkja á Nauthúsagil, sem er staður, þokkalega falinn mörgum. Ég var reyndar mest forvitinn að finna gönguskó dóttur minnar sem gleymdust þarna fyrir nokkrum mánuðum. Ég fann þá ekki. En það var ófært að ganga gilið, þannig ég lét mér nægja að fylla flöskuna af fersku vatni og halda áfram.
Ég stoppaði stutt við Seljalandsfoss, þar sem vegurinn fyrir aftan fossinn var lokaður vegna snjóþyngdar.
Því næst fór ég að Skógafossi. Þar var ég aleinn í heiminum og fylgdist ég með snjókornunum blandast vatninu í máttugum fossinum.

Það góða við að vera einn á Skógafossi er að þá eru tröppurnar sem leiða mann upp fyrir fossinn auðar. Eitthvað sem ég hef aldrei fengið út af fyrir mig áður. Ég nýtti því tækifærið og hljóp upp.
Eða, ég hljóp þar til ég gat ekki hlaupið lengur og skreið svo restina af þessum rúmlega 400 tröppum.

Ég endaði svo daginn í Reynisfjöru þar sem ég fylgdist dáleiddur með ógnvæglegum öldunum berja svarta sandinn. Það er auðvelt að gleyma sér í Reynisfjöru og auðvitað um leið stórhættulegt.
Ég gisti í Vík í kvöld, eða rétt fyrir utan á Hótel Kötlu, en á morgun bíða mín nokkur ævintýri í kringum bæinn áður en ég held ferð minni áfram austur.
Næstu daga ferðast Garpur Elísabetarson um landið. Garpur er aleinn en vopnaður myndavélum fyrir ferðadagbók, sem hann heldur úti hér á Vísi og í Bítinu á Stöð 2. Garpur heimsækir íslenskar náttúruperlur og hvetur Íslendinga til að kynnast landinu sínu betur. Einnig er hægt að fylgjast með Garpi á Instagram og á Facebook-síðunni Ferðalangur í eigin landi. Ferðalagið er unnið í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar.