Alþingi samþykkti í kvöld aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldsins. Aðgerðirnar sem samþykktar voru hljóða upp á tæplega 26 milljarða króna og fela meðal annars í sér frestun á greiðslu opinberra gjalda, brúarlán til fyrirtækja og fjármagn til að greiða öryrkjum tuttugu þúsund króna skattfrjálsa eingreiðslu í sumar.
Frumvarpið var samþykkt með 41 samhljóma atkvæði en breytingatillögur stjórnarandstöðunnar voru felldar en hún lagði til 4,6 milljarða króna aukningu í málaflokkinn.
Sjá einnig: Aðgerðapakki upp á tæpa 26 milljarða afgreiddur í kvöld
Atkvæðagreiðslan í kvöld tók lengri tíma en venjulega vegna þess að þingmenn þurftu að halda tveggja metra fjarlægð frá hvor öðrum og ganga inn í þingsalinn í einfaldri röð til að greiða atkvæði áður en þeir gengu út úr salnum. Ekki er vitað hvenær þing kemur næst saman en samþykkt var af forsætisnefnd Alþingis fyrr í þessum mánuði að þing yrði aðeins kallað saman vegna mála tengdum kórónuveirunni.