Prófessor og sérfræðingur í smitsjúkdómum segir ólíklegt að hægt sé að aflétta mörgum hömlum sem settar hafa verið vegna kórónuveirufaraldursins fyrr en bóluefni er komið gegn veirunni.
Magnús Gottfreðsson, prófessor og sérfræðingur í smitsjúkdómum, var gestur Kristjáns Kristjánsson í þættinum Sprengisandi í morgun. Þar var hann spurður út í það hvenær mögulegt verði að losa um margar af þeim hömlur sem settar hafa verið og að hægt verði aftur að taka á móti ferðamönnum án þess að þeir þurfi að fara í sóttkví við komuna til landsins.
„Sumar af þessum breytingum sem að mælt hefur verið fyrir eru komnar til að vera þangað til við höfum bóluefni. Ég held að það sé afskaplega ósennilegt að við náum hjarðónæmi og getum einhvern vegin aflétt öllum þessum hömlum vegna þess að fólk er orðið almennt varið með sínum náttúrulegu mótefnum,“ sagði hann.
„Meira að segja í Svíþjóð, Bretlandi og í New York þar sem sýkingin hefur geysað og verið býsna hörð þar er hjarðónæmi mjög langt frá því að teljast fullnægjandi til að hamla gegn útbreiðslu,“ sagði Magnús.