„Að gefnu tilefni“ biður lögregla fólk um að sýna tillitsemi og birta ekki myndir frá slysstað á samfélagsmiðlum.
Klukkan 11:49 barst lögreglu tilkynning um að ekið hafði verið á gangandi vegfarendur í Reykjanesbæ. Tveir aðilar voru...
Posted by Lögreglan á Suðurnesjum on Fimmtudagur, 7. janúar 2021
Ekki eru veittar frekari upplýsingar um slysið eða líðan hinna slösuðu í tilkynningu. Í frétt Víkurfrétta segir að mikill viðbúnaður hafi verið á slysstað í hádeginu. Þá hafi lögregla enn verið við vinnu á vettvangi tveimur tímum eftir að slysið varð.