Ársæll Guðmundsson, skólastjóri Borgarholtsskóla, segir að verkferlar í skólanum og skólasamfélaginu öllu verði yfirfarnir í kjölfar atviksins. Hann segir það hafa verið sérstaka tilfinningu að mæta í skólann í morgun en að allir haldi ró sinni.
Láta atburðinn ekki slá sig út af laginu
„Staðan hjá okkur er góð, miðað við aðstæður. Nemendur komu hér í morgun og hér ríkir bara rósemd og friður. Hér eru sérfræðingar hjá okkur í áfallahjálp og verða hér í allan dag fyrir þá starfsmenn og nemendur sem það kjósa,“ segir Ársæll.
„Við erum hörð á því að láta ekki þennan atburð í gær slá okkur út af laginu og trufla okkar góða og friðsama skólastarf.“

Það hafi verið sérstök upplifun að mæta í morgun. „Það er mjög sérstakt að mæta en það er einhvern veginn kyrrð yfir öllu. Það er svona rósemd.“
Áminning um að sofna ekki á verðinum
Engum hefur verið vikið úr skólanum enn sem komið er, en verið er að yfirfara myndavélakerfið.
„Við skoðum þetta innanhúss hjá okkur út frá okkar skólareglum. Og greiðum bara úr því hverjir voru aðilar og hvað gekk á og svo framvegis. Síðan verða ákvarðanir teknar í framhaldinu hvað það varðar. Og við munum að sjálfsögðu og allt skólasamfélagið væntanlega fara yfir alla verkferla hjá okkur varðandi að tryggja sem mest öryggi allra í öllum skólum og öllum opinberum byggingum. Þetta er áminning til okkar að sofna ekki á þessum verði,“ segir Ársæll.
„Það voru eflaust einhverjir nemendur skólans blandaðir inn í þessu átök sem við erum bara að reyna að finna út úr. Það voru upptökur af þessu öllu, en það mun fljótlega liggja ljóst fyrir.“
Samband íslenskra framhaldsskólanema sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem það segist harma atvikið. Mikilvægt sé að nemendum finnist þeir öruggir í skólanum en að atvikið geti dregið úr öryggiskennd. Sambandið mun funda með stjórnendum Borgarholtsskóla síðar í dag.