Björgunarsveitarmenn sóttu í gær lyf og aðrar nauðsynjar fyrir bæjarbúa vegna ófærðar sem var allt í kringum bæinn. Almannavarnir og Veðurstofa Íslands munu halda stöðufund um ástandið klukkan 16.00 í dag en fréttatilkynning verður send út að honum loknum.

Nágrannakærleikur í algleymingi á Siglufirði
Fólki í alls níu húsum á Siglufirði var gert að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir að það hafi verið leikur einn að finna fólkinu dvalarstað á Siglufirði.
„Fólkið dreifðist bara á mörg heimili í bænum. Það voru mjög margir sem buðu fram pláss, bæði þeir sem reka ferðaþjónustu á svæðinu og íbúar sem buðu fram aðstoð við að hýsa fólk. Náungakærleikurinn skein í gegn.“
Að neðan má sjá myndband af eyðileggingunni í Skarðsdal sem Sigurður Þór Helgason hjá DJI Reykjavik tók.
Lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynnti um hádegisbil að nú væri ljóst að fólkið gæti ekki fengið að snúa aftur strax en staðan yrði endurmetin klukkan 16.00 í dag og frekar upplýsingar sendar út til íbúa í kjölfarið.
Veðurstofu Íslands er ekki kunnugt um að fleiri snjóflóð hafi fallið í nótt en snjóathugunarmenn hófu athugun á aðstæðum um leið og birti. Veðurspáin næstu daga er ekki hagstæð. Harpa Grímsdóttir er hópstjóri ofanflóðavöktunar.
„Ekki er spáð neinu aftakaveðri en þessi langvarandi snjósöfnun ásamt éljagangi og skafrenningi er eitthvað sem við höfum áhyggjur af og þurfum að fylgjast með.“
Týr verður til taks
Varðskipið Týr er komið norður. Víðir segir að það sé til að gæta fyllsta öryggis.
„Þetta er hluti af því sem við gerum yfirleitt alltaf í kringum snjóflóðaviðbúnað. Við viljum hafa varðskip í nánd til að geta flutt, með stuttum fyrirvara, hjálparlið á staðinn ef þörf þykir því yfirleitt fylgir þessum snjóflóðaviðbúnaði lokanir vega þannig að við komumst ekki alltaf landleiðina.“
Búið er að opna veginn á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar en athugið þó að óvissustig gildir þar enn vegna snjóflóðahættu.
„Gott væri að fólk takmarki ferðir eins og það getur nema brýna nauðsyn beri til“.