Boð um bólusetninguna verða send með SMS skilaboðum og fólk er beðið um að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram. Þeir sem eru á þessum aldri en hafa ekki fengið SMS skilaboð geta komið á Suðurlandsbraut 34, milli kl. 9:00 og 15:00 sama dag og fengið bólusetningu.
Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og er minnt á grímuskyldu.
Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Því er fólk beðið um að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.
Hafi fólk bráðaofnæmi er ekki ráðlegt að bólusetja það. Þeir sem ekki þiggja bólusetningu eru beðnir um að láta vita á bolusetning@heilsugaeslan.is eða i síma 513-5000.