Starfshópur á vegum Sigurðar Inga Jóhannesonar samgönguráðherra hefur skilað skýrslu um mat á brú annars vegar og jarðgöngum hins vegar í tengslum við lagninu Sundabrautar. Niðurstaðan er sú að Sundabraut með brú yrði fjórtán milljörðum ódýrari en með göngum. Heildarkostnaður við verkið yrði 69 milljarðar í stað áttatíu og þriggja.
Borgin og ríkið hafa tekist á um það í áratugi hvar Sundabraut eigi að liggja. Verði sú leið farin sem nú er lagt til mun Sundabrú liggja í beinni línu frá Holtavegi yfir á Gufunes og stór hluti brúarinnar verður á stólpum á landi.

Brúin lægi í boga frá Holtavegi að Gufunesi þar sem hæst yrðu 30 metrar frá haffleti að brúargólfi þannig að minni flutningaskip gætu siglt undir brúna að athafnasvæði Samskipa. Tvær akreinar í hvora átt með göngu- og hjólastígum.

Sundabraut er hluti af samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga á höfðuðborgarsvæðinu. Fulltrúar þeirra, ráðuneytisins Vegagerðarinnar og Faxaflóahafna áttu sæti í starfshópnum sem nú hefur skilað niðurstöðum.

„Niðurstaða mín eftir að hafa séð þessa skýrslu er að vera sammála starfshópnum. Um að þessi valkostur sé mjög góður fyrir samgöngur og samgöngubætur hér á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Sigurður Ingi.
Nýr þjóðvegur yrði lagður frá brúarenda í Gufunesi, með brúm í Leirvogi og Kollafirði upp á Kjalarnes. Ráðherra segir að hægt sé að hefja skipulags og hönnunarvinnu bráðlega þannig að framkvæmdir gætu hafist eftir um fjögur ár með verklokum á bilinu 2029 eða þrjátíu.

Sundabraut er eitt þeirra verkefna sem Alþingi samþykkti að yrði samvinnuverkefni ríkis og einkaaðila.
Þýðir það að það verður gjaldtaka á þessari leið?
„Já þegar framkvæmdum myndi ljúka verður galdtaka.“
Hvað myndi sú gjaldtaka standa í mörg ár?
„Það þyrfti að koma í ljós við fýsileikakönnun. Gæti reyndar einnig skýrst við félags-hagfræðilega könnun sem gerð verður líka á næstu mánuðum,“ segir Sigurður Ingi.
Fram kom á fréttamannafundi ráðherrans í dag að töluverð röskun yrði ástarfsemi Samskipa og fleiri aðila við Holtagarða á framkvæmdatímanum. Þá þyrfti að framlengja hafnargarð lengra til vesturs á athafnasvæði Samskipa fyrir stærri skip félagins sem ekki kæmust undir brúna.