„Það hefur skapast umræða um fjölda lúxus eigna sem selst hafa á Íslandi fyrir mörg hundruð milljónir og vildi ég athuga hvað væri til í þessum tölum,“ segir Páll Pálsson fasteignasali. Hann ákvað að taka saman lista yfir átta af þeim dýrustu íbúðareignum í fjölbýli eða sérbýli sem seldar hafa verið á Íslandi síðustu ár, miðað við þinglýsta kaupsamninga.
„Það sem kom mér á óvart hvað í raun fáar eignir hafa selst yfir 200 milljónir en úr varð þessi listi sem er á þegar öllu er á botni hvolft til gamans gerður,“ segir Páll.
„Tvær af dýrustu eignunum eru í sérflokki þegar kemur að íburði en vinsælar staðsetningar miðsvæðis og stærð húsanna setur þessar eignir í ákveðinn sérflokk þar sem efnameiri einstaklingar vilja búa.“
Á lista Páls eru meðal annars 460 milljón króna eign í fjölbýli í miðbænum og 563 milljón króna einbýli á Seltjarnarnesi.
Penthouse með útsýni
Páll horfði á helstu tölur frá árinu 2017 við gerð listans.
„Það er reyndar alltaf sá möguleiki til staðar að vanti einhverjar eignir á listann en á tímabili gastu þinglýst afsali án þess að söluverðið kæmi sérstaklega fram. Það er til dæmis eign að Sólvallagötu sem sögur segja að hafi selst á yfir 300 milljónir og glæsieign í Akrahverfinu hafi selst á 340 til 360 milljónir er allt óstaðfest þar sem það kemur ekki fram í opinberum gögnum.“
Á Íslandi er ein eign sem er í sérstöku uppáhaldi hjá fasteignasalanum.
„Það er erfitt að horfa fram hjá Hrólfsskálavörinni sem er sérlega glæsileg eign en myndi segja að hugmyndin um 300 fermetra penthouse íbúð með miklu útsýni er eitthvað sem ég myndi sjálfur kjósa sem fyrsta kost.“
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem Páll tók saman yfir nokkrar af dýrustu fasteignum sem seldar hafa verið á Íslandi síðustu ár.