Á von á að málum staðanna í miðbænum ljúki með sekt Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 13. febrúar 2021 11:31 Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm Víða var fullbókað á veitingastöðum í miðborginni í gær, fyrstu helgina sem krár og skemmtistaðir fengu að taka úr lás eftir rúmlega fjögurra mánaða lokun. Tveir veitingastaðir eiga von á sekt vegna brota á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að talsvert af fólki hafi verið í miðbænum í gærkvöldi. „Það var samt það gott ástand að þrátt fyrir að það hefði verið farið í eftirlit á 20 veitingastaði þá voru einungis gerðar athugasemdir við tvo þeirra þannig ég vil heilt yfir hrósa veitingamönnum fyrir að standa vaktina vel,“ segir Ásgeir í samtali við fréttastofu. Einn veitingastaður má búast við sekt fyrir brot á sóttvarnalögum annars vegar og brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald hins vegar, þar sem veitingahald var ekki samkvæmt leyfi. Annar veitingastaður verður hugsanlega sektaður fyrir brot á sóttvarnalögum þar sem fjöldatakmarkanir voru ekki virtar. Ásgeir á von á að málunum tveimur ljúki með sekt. „Það er ekkert brot skráð þar sem skemmtistaðirnir voru of lengi opnir en fólk á að vera farið klukkan tíu. Þannig það er ekkert skráð þannig og ég get ekki betur séð en að miðborgin hafi verið komin í ró milli ellefu og tólf,“ segir Ásgeir.
Reykjavík Lögreglumál Samkomubann á Íslandi Veitingastaðir Mest lesið Með nettengingu í trássi við öryggisreglur til að komast inn á Signal Erlent Árásarmaðurinn sagður aðhyllast hugmyndir Hitler Erlent Meintir hópnauðgarar á bannlista skemmtistaðar Innlent Neituðu sök en viðurkenna nú að hafa drepið hjálparstarfsmann Erlent Vagga Akureyrarflugs er á Melgerðismelum Innlent Alvarlegt ef þrefalda á strandveiðikvóta á kostnað annarra Innlent Setja þurfi skýrar reglur um sæðisgjöf á Íslandi Innlent Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisáreitni gegn barni Innlent „Vladímír, HÆTTU!“ Erlent Fleiri fréttir Vagga Akureyrarflugs er á Melgerðismelum Setja þurfi skýrar reglur um sæðisgjöf á Íslandi Alvarlegt ef þrefalda á strandveiðikvóta á kostnað annarra „Fúsi, aldur og fyrri störf” á Sólheimum um helgina Meintir hópnauðgarar á bannlista skemmtistaðar Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisáreitni gegn barni Ósáttur Bandaríkjaforseti og sumarsól Vasaþjófur handtekinn í miðborginni Árásarmaðurinn trúverðugur en sá sem var stunginn misvísandi Ármann Leifsson nýr forseti Röskvu Einn handtekinn þegar sérsveitin aðstoðaði í Árnessýslu Svara ákalli foreldra Fjölbreytt dagskrá á vorhátíð í Árborg Umræða um gróf kynferðisbrot eigi ekki að snúast um þjóðerni gerenda Miður að hópnauðganir séu nýttar til að kynda undir útlendingahatur Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Kastaði eggjum í bíl Þurrt og léttskýjað á sumardaginn fyrsta „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Gríðarlegir fjármunir sveitarfélaga í öryggisvistanir Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Milljarður í kostnað vegna öryggisvistunar og húðflúr í beinni Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Mótmæla hagræðingum og segja þær bitna á konum Skóflustunga að padelveislu í Kópavogi Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Ríkissaksóknari staðfestir niðurfellingu í stórri slysasleppingu Sjá meira