Svipta Puigdemont og tvo til viðbótar friðhelgi Atli Ísleifsson skrifar 9. mars 2021 08:53 Carles Puigdemont var forseti héraðsstjórnar Katalóníu á árunum 2016 til 2017. EPA/OLIVIER HOSLET Meirihluti Evrópuþingsins hefur samþykkt að svipta Evrópuþingmanninn Carles Puigdemont friðhelgi. Puigdemont er fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu, en auk Puigdemont hafa tveir Evrópuþingmenn til viðbótar verið sviptir friðhelgi.
Puigdemont og nokkur fjöldi samstarfsmanna hans flúðu til Belgíu í október 2017 af ótta við handtöku í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu sem stjórnvöld á Spáni höfðu lýst sem ólöglegri. Þing Katalóníu lýsti í kjölfar atkvæðagreiðslunnar yfir sjálfstæði héraðsins. Árið 2019 náði Puigdemont, auk tveggja fyrrverandi ráðherra í héraðsstjórn Katalóníu, þeirra Toni Comin og Clöru Ponsati, sæti á Evrópuþinginu. Sem þingmenn hafa þeir notið friðhelgi og hefur ekki verið hægt að sækja þau til saka fyrir þátt sinn í atkvæðagreiðslunni og sjálfstæðisyfirlýsingunni. Nefnd á vegum Evrópuþingsins sem hefur með lagaleg álitamál að gera lagði í síðasta mánuði til að þrímenningarnir yrðu sviptir friðhelgi. DW segir frá því að um fjögur hundruð þingmenn hafi greitt atkvæði með því að svipta þingmennina friðhelgi, tæplega 250 greiddu atkvæði gegn, og 45 þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Í yfirlýsingu frá Puigdemont kemur fram að hann ætli sér að áfrýja málinu til Evrópudómstólsins.
Evrópusambandið Spánn Sjálfstæðisbarátta Katalóníu Mest lesið Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Fleiri fréttir Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Sjá meira