Daginn áður hafði CBS-sjónvarpsstöðin sýnt viðtal Opruh Winfrey við Meghan og eiginmann hennar, Harry Bretaprins, en margt af því sem kom fram í viðtalinu hefur vakið mikla athygli.
Viðtalið var til umræðu í Good Morning Britain á mánudagsmorgun. Þá lýsti Morgan því yfir að hann tryði ekki orði af því sem Meghan hefði sagt í viðtalinu.
„Mér finnst þessi árás hennar á konungsfjölskylduna fyrirlitleg,“ sagði Morgan meðal annars.
Í þættinum í gærmorgun ítrekaði Morgan síðan að hann ætti erfitt með að trúa Meghan. Í gærkvöldi var síðan greint frá því að Morgan hefði ákveðið að hætta í Good Morning Britain en rúmlega 41 þúsund kvartanir höfðu þá borist eftirlitsaðilanum Ofcom vegna ummæla Morgans.
Morgan tísti í morgun þegar Good Morning Britain var við það að hefjast og sagðist þá standa við orð sín um Meghan.
„Ég hef haft tíma til að hugsa um þessa skoðun mína og ég stend við hana. Ef þú trúðir Meghan, allt í lagi. Tjáningarfrelsið er hæð sem ég mun glaður deyja á. Takk fyrir alla ástina og hatrið. Ég ætla nú að verja meiri tíma með skoðunum mínum,“ tísti Morgan og deildi með mynd af kvóti í Winston Churchill, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, um tjáningarfrelsið.
On Monday, I said I didn t believe Meghan Markle in her Oprah interview. I ve had time to reflect on this opinion, and I still don t. If you did, OK. Freedom of speech is a hill I m happy to die on. Thanks for all the love, and hate. I m off to spend more time with my opinions. pic.twitter.com/bv6zpz4Roe
— Piers Morgan (@piersmorgan) March 10, 2021
Morgan bætti síðan í þegar hann ræddi við fjölmiðla fyrir utan heimili sitt áðan.
„Ég trúi nánast engu sem kemur út úr henni [Meghan] og ég held að skaðinn sem hún hafi valdið konungdæmin og drottningunni á meðan Filippus prins liggur á spítala sé gríðarlegur og hreinlega fyrirlitlegur. Ef ég á að falla á sverð mitt fyrir að hafa heiðarlega skoðun á Meghan Markle og þeim þvættingi og skammaryrðum sem hún fór með í þessu viðtali þá verður að hafa það,“ sagði Morgan.