Það er líkt og gígurinn horfi á mann þegar horft er ofan í kvikuna að ofan.Vísir/Egill
Hundruð ef ekki þúsundir lögðu leið sína til Grindavíkur í dag og áfram Suðurstrandarveginn í átt að gosstöðvunum. Göngufólk hefur upplifað sólskin og haglél en áfram kraumar í gígnum í Geldingadal.
Jóhann K. Jóhannsson og Egill Aðalsteinsson, frétta- og tökumenn fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, hafa verið á svæðinu í dag og fylgst með göngugörpum á leið að gosinu.
Ýmislegt er hægt að ímynda sér, eins og að hér sé steintröll með appelsínugul augu að fylgjast með dróna á flugi.Vísir/Egill
Auk þess fylgdust okkar menn með bílaumferðinni á svæðinu en röð bíla á Suðurstrandarvegi var nokkurra kílómetra löng.
Ítarlega verður fjallað um stöðu mála í Geldingadal í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30 en göngufólk þarf að yfirgefa svæðið fyrir klukkan 17 í dag vegna mengunarhættu.
Þá tók Egill meðfylgjandi myndir af gígnum í dag sem sjá má hér að neðan.
Útsýnið er svo sannarlega ekki ónýtt.Vísir/EgillStóri gígurinn og minni uppsprettur kviku við hliðina.Vísir/EgillGasmengun gæti farið yfir lífshættuleg mörk á svæðinu í kvöld og á morgun.Vísir/EgillStundum sást í bláan himinn.Vísir/EgillTelja má víst að fáir göngugarpar sjái eftir ferð sinni á gossvæðið í dag enda mögnuð sjón að sjá.Vísir/EgillFjöldi fólks lagði leið sína á gosstöðvarnar í dag.Vísir/Egill
Þessi magnaða mynd sem tekin var með sérstakri myndavél um borð í vél Landhelgisgæslunnar TF-SIF í gær. Myndin sýnir þrjú megin gosop eldgossins á Eyjafjallajökli. Gosopin eru 200 til 500 metrar í þvermál.
Myndir og myndbönd frá gosinu á Reykjanesskaga hafa vakið mikla athygli síðustu daga, bæði hér á landi og langt út fyrir landsteinana. Björn Steinbekk hefur farið tvær ferðir til að mynda gosið.
Nágrenni eldgossins í Geldingadal verður rýmt klukkan 17:00 í dag en Veðurstofan varar við því að hættulegar gastegundir geti safnast fyrir í lægðum og dældum þegar veður lægir. Styrkur gassins þar gæti verið lífshættulegur.
Björgunarsveitarmaður í svæðisstjórn björgunarsveitanna á Suðurnesjum mælir eindregið með því að fólk fari stikuðu leiðina að gosstöðvunum. Þannig sé best að ná til fólks ef eitthvað kemur upp á. Gríðarlegur bílastæðavandi blasir við í dag en hann biðlar til fólks að vanda sig við að leggja því viðbragðsaðilar verði alltaf að hafa greiða leið.