„Hefðin er eiginlega orðin sú að Bergþór minn bakar tertuna og svo birti ég á blogginu uppskriftina,“ segir Albert. Tertan þeirra í ár er Dísudraumur sem gengur líka sums staðar á landinu undir nöfnunum Bessastaðaterta, Slumma og Slummuterta.
Innslagið má sjá í spilaranum en uppskrift þáttarins má svo finna hér neðar í fréttinni.
Dísudraumur með ferskum berjum
Svamptertubotn
- 2 egg
- 70 g sykur
- 30 g hveiti
- 35 g kartöflumjöl
Aðferð:
Þeytið egg og sykur þar til blandan er hvít. Sigtið hveiti og kartöflumjöl út í og þeytið vel saman. Setjið í tertuform og bakið við 200°C í 5 mínútur, lækkið síðan hitann í 180°C og bakið áfram í 7 mínútur. Hvolfið á tertudisk.
Marengsbotn
- 3 eggjahvítur
- 150 g flórsykur
Aðferð:
Þeytið saman á fullum styrk í a.m.k. 10 mínútur, svo að hægt sé að hvolfa skálinni án þess að hvíturnar hreyfist. Bakið við 100°C í 2 klst., opnið ofninn ekki, látið kólna í ofninum.

Krem
- 3 eggjarauður
- 4 msk flórsykur
- 50 g brætt suðusúkkulaði
Aðferð:
Þeytið rauður og flórsykur vel saman. Bræðið súkkulaðið, hellið út í og þeytið áfram á meðan.
Rjómi
- 1/2 lítri rjómi
- Ber af ýmsu tagi, brómber, hindber, vínber o.s.frv.
Aðferð:
Þeytið nú 1/2 lítra af rjóma, blandið nokkrum matskeiðum af honum út í kremið áður en ber eru sett út í rjómann. Smyrjið helmingnum af honum á svampbotninn. Hellið helmingnum af kreminu yfir rjómann og jafnið út með spaða. Setjið marengsbotninn þar ofan á, afganginn af rjómanum yfir hann og síðast afganginn af kreminu.
Skreytið að vild, með berjum og e.t.v. bráðnu súkkulaði, áður en tertan er borin fram. Oftast er rjóma sprautað á hliðarnar á Dísudraumi, en það er líka girnilegt að sjá lögin í tertunni.
