Þetta kom fram í viðtali sem fréttastofa átti við Áslaugu fyrir utan ráðherrabústaðinn nú rétt í þessu en ríkisstjórnin hittist til að ræða og fara yfir nýjar tillögur Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra; nýja reglugerð sem tók gildi á miðnætti. Áslaug Arna segir sátt um hana innan ríkisstjórnarinnar.
„Það gengur vel í baráttunni við veiruna, ljóst að það eru fá smit í samfélaginu, fáir á spítala og nú þurfum við að fara að horfa til þess hvað er fram undan. Hvaða markmið í bólusetningum þegar fleiri eru komnir með vernd. Þegar svona vel gengur hér innanlands er stefnt að frjálsara samfélagi.“
Ráðherra telur að tímabært sé að létta á reglum innanlands
Nú var fyrri reglugerð dæmd ólögmæt. Hver er stefna Sjálfstæðisflokksins í þeim efnum?
„Mjög mikilvægt er að allar svona íþyngjandi aðgerðir gegn borgurum hafi skýra lagastoð. Héraðsdómur komst að því að svo var ekki. Heilbrigðisráðherra fer núna leið sem gengur skemur en er auðvitað til þess fallin að gæta að öllum sóttvörnum. Og þá hagsmuni að leiðarljósi að við getum tryggt að sem fæstir smitaðir komi til landsins.“
Þá var Áslaug Arna spurð út í litakóðunarkerfið sem hefur verið gagnrýnt talsvert. Hún sagði Íslendinga nú vera að nálgast það að hafa bólusett alla sem eldri eru en sjötíu ára. Og enn fleiri seinni partinn í apríl. Staðan í löndunum í kringum okkur sé með þeim hætti að það muni lítið breytast þegar litakerfið taki gildi 1. maí. Þá var ráðherra spurður hver hennar afstaða væri til þess, sem ýmsir Sjálfstæðismenn, jafnt innan sem utan þings hafi kallað eftir sem eru vægari sóttvarnaraðgerðir?
„Já, ég held að það sé að koma tími á að fara að létta á hér innanlands og ég vonast eftir því að það verði gert sem fyrst. Það er auðvitað lítið um smit, enginn alvarlega veikur og ég bind vonir við að hér verði frjálsara og opnara samfélag með hverjum deginum í átt að sumri.“
Mál Brynjars ekkert rædd innan flokks
Finnst þér aðgerðir of harðar?
„Ég held að það þurfi að líta til þess og ég held að það þurfi að fara að létta á þeim. Það gengur almennt vel í baráttunni við veiruna. Fá smit utan sóttkvíar og við verðum að líta til þess. Leyfa fólki að njóta þess og horfa jákvæðum augum til þess.“
Áslaug Arna var að endingu spurð hvað henni sýndist um fræga för Brynjars Níelssonar þingmanns til Spánar, þó fyrir lægju tilmæli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis að fólk væri ekki að ferðast milli landa að óþörfu?
„Ég veit ekki betur en Brynjar hafi farið áður en sóttvarnarlæknir hafi komið fram með þau tilmæli. Hann hefur sínar ástæður fyrir því.“
Áslaug Arna segir mál Brynjars ekkert hafa verið rætt innan flokks, fólk sé frjálst og ferðist milli landa ef það telur þörf á því.