Það er kannski helst að nefna að veiðin í Tungulæk hefur verið mjög góð þrátt fyrir mikin kulda síðust daga en holl sem var að klára var með 54 birtinga og marga stóra 80-90 sm og í það minnsta einn sem var yfir það. Tungulækur er oftar en ekki mjög gjöfull á þessum tíma og ef það hlýnar aðeins þá er ekki ósennilegt að einhver hollin gæu farið að teygja sig í 100 fiska.
Veiðin í Ytri Rangá hefur líka verið ágæt og veiðimenn hafa verið að setja í væna fiska í neðri hlutanum af ánni. Það er búið að vera ansi kalt við bakkann þar undanfarið eins og annars staðar og um leið og það hlýnar aðeins fer fiskurinn á meiri hreyfingu og tekur betur. Það getur þess vegna verið spennandi tími þar framundan.
Hörðustu aðdáendur Hólaá hafa verið iðnir að kíkja í hana frá opnun en þessu rómaða bleikjuá gefur á þessum tíma svo til eingöngu urriða og það getur verið mjög gaman að eiga við hann. Þeir eru kannski í sömu stærðum og birtingurinn sem flestir eru að eltast við á þessum tíma en mest af urriðanum í ánni er 2-3 pund en inná milli sjást og veiðast fiskar sem eru stærri. Þegar líður á tímabilið og lofthiti og vatnshiti hækkar hverfur urriðinn í Apavatn en bleikjan mætir í staðinn.