Þetta á helst við á svæðinu Ásgarður en þar hefur verið vaxandi veiði á vænni bleikju eftir að veiðimenn fóru að sleppa öllum veiddum fiski aftur. Vorveiðin getur svo sem verið dyntótt en síðust daga er óhætt að segja að mikið líf hafi verið á svæðinu.
Hópur sem var við veiðar í fyrradag fékk 25 bleikjur og margar hverjar rígvænar eins og sést á meðfylgjandi mynd. Þetta er slungið og skemmtilegt veiðisvæði sem eins og allir veiðimenn þekkja getur verið mjög gjöfult á lax á sumrin. Það gengur líka sjóbirtingur í Sogið seint á haustin og á þessum tíma er ekki óalgengt að niðurgöngufiskur sé að veiðast. En núna er bleikjan málið. Það er fagnaðarefni að heyra af góðri bleikjuveiði í Soginu því stofninn þar er viðkvæmur og á tímabili var staðan einfaldlega þannig að það var allt of mikið drepið af fiski sem kom illilega niður á hrygningu.
Sá tími er liðinn, í það minnsta við Ásgarð en skylduslepping hefur ekki verið sett á við Bíldsfell eða Alvirðu að okkur vitandi en það væri óskandi að sjá það gerast til að Sogið nái kröftum sínum aftur.