Þetta staðfestir Áslaug Ellen Yngvardóttir, umsjónarmaður sóttkvíarhótelsins, í samtali við Vísi. Ekki liggur endanlega fyrir ennþá hvaða hótel verður þriðja hótelið í Reykjavík sem notað verður sem sóttkvíarhótel.
„Við erum að fara að opna nýtt hótel á morgun,“ segir Áslaug, sem var einmitt að í óða önn að skoða nýtt hótel þegar Vísir náði af henni tali síðdegis.
„Við munum örugglega taka það í gagnið á morgun þannig að það verði tilbúið fyrir Póllandsflugið ef við skyldum fylla Fosshótel Reykjavík og Hótel Storm í Reykjavík í dag. Þannig að við erum að fara að undirbúa nýtt hótel á morgun því að við getum ekki verið viss um hvort að hin tvö muni duga,“ segir Áslaug.
Aðspurð segir hún að ekki liggi endanlega fyrir hvaða hótel það verður sem bætist við. „Það eru búin að aukast svo mikið flugin á laugardögum og þess vegna eru breytingar núna af því það er miklu fleira fólk en hefur verið. Ferðasumarið er byrjað,“ segir Áslaug Ellen létt í bragði. „Við finnum fyrir því í sóttkvínni.“
Hún segir að almennt hafi gengið vel síðan að nýjar reglur tóku síðast gildi á landamærum sem skilda þá sem koma frá skilgreindum hááhættusvæðum til að sæta sóttkví á sóttvarnahóteli.
„Ég myndi bara segja ótrúlega vel. Bara allir frekar sáttir og voða lítið um kvartanir og virðist bara sem fólki líði vel hjá okkur sem er mjög ánægjulegt,“ segir Áslaug.