Vísir ræddi við Adolf Inga sem segir þetta æðislegt, hann fór í sína fyrstu ferð síðan í ágúst í fyrra. Ferðaþjónustan er að ræsa sínar vélar.
„Já, allaveganna er búið að endurráða mig hjá Artic Adventures, frá því um mánaðamót. Ég fór fyrstu ferð í gær með tvo ferðamenn til að skoða gosið.“
Ferðaþjónustan býst einkum við Bandaríkjamönnum
Adolf segir að um hafi verið að ræða belgísk hjón sem ferðuðust hringinn um landið í ágúst í fyrra en komu nú hingað sérstaklega til að sjá eldgosið.
„Þau hafa ferðast um heim allan til að skoða eldgos. Það vildi svo skemmtilega til í gær, en þá voru örfáar hræður á ferðinni, að ein ung stúlka sem við mættum í bröttustu brekkunni, hún var líka frá Belgíu. Eini túristinn sem ég talaði við fyrir utan þessi hjón mín. Kom skemmtilega á óvart, hélt að þetta væru aðallega Bandaríkjamenn.“
Adolf Ingi fer sína fyrstu hringferð um landið um miðjan mánuðinn. Bókanir eru að detta inn og fólk að koma.

„Einhvers staðar verður að byrja. Byrjum smátt en þetta er að fara í gang. Ég er himinlifandi með að vera kominn aftur til starfa, við það sem ég hef unnið við síðustu árin og ætla mér að vinna með.“
Að sögn Adolfs Inga er framan af sumri einkum búist við að Bandaríkjamenn sæki landið heim. Þar virðist ferðaviljinn vera mikill meðal þeirra sem búnir eru að fá bólusetningu. „Það er sá hópur sem helst er litið til fram eftir sumri. Svo vonast menn til að Bretar, en þar ganga bólusetningar gengið vel en stjórnvöld lagst gegn því að fólk ferðist. En vonandi að það breytist.“
Gosið á eftir að reynast gríðarlegt aðdráttarafl
Fleiri ferðaþjónustuaðilar en Artic Adventures voru með ferðir að gosinu í gær. Adolf Ingi segir það klárt mál að ferðaþjónustan sé í viðbragðsstöðu, allt að fara í gang.
„Fyrirtækið hjá okkur byrjar hægt en það er búið að endurráða einhverja starfsmenn. Þetta er að fara í gang þannig að þetta er allt önnur líðan og stemmning. Nú ríkir bjartsýni, að þetta fari verulega í gang á næstu mánuðum.“
Spurður hvort gosið á Reykjanesi muni reynast segull á ferðamenn er helst á Adolfi Inga að skilja að þar sé kjánalega spurt.
„Jú, og maður liggur á bæn og vonar að þetta haldist. Ekkert sem við getum boðið uppá sem jafnast á við þetta gos. Meðan þetta er svona aðgengilegt, með fullri virðingu fyrir öllu öðru sem við höfum upp á að bjóða; lifandi gos toppar allt aðdráttarafl. Jú, drottinn minn, það á eftir að verða ofboðslegt aðdráttarafl.“