Þar bar á góma hefðbundnar þrálátar þjóðsögur eins og að Íslendingar hefðu lítið annað að gera en að njóta samvista við álfa í frístundum sínum og jafnvel var vikið að appinu sem allir Íslendingar eru sagðir þurfa á að halda, sem sýnir hvort makar þeirra séu skyldir þeim.
Appið var raunar styrktaraðili grínsins: Allt í boði „Cousin Checker.“
Enn bættist á gleðina þegar sjálfur milljarðamæringurinn Elon Musk steig inn í þáttinn sem aukaleikari. Hann var í hlutverki framleiðandans Ragnarök, sem var ástfanginn af þáttastjórnandanum.
Musk var jafnframt umsjónarmaður þáttarins þetta kvöld, sem er mjög eftirsóknarvert hlutverk. Hann notaði vettvanginn til að opna sig fyrir heimsbyggðinni um að hann væri með Asperger's-heilkennið og væri þar með fyrsti einhverfi maðurinn til að stýra þættinum.
Saturday Night Live er sýndur á NBC og er einn allra vinsælasti sjónvarpsþáttur í Bandaríkjunum.