Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
„Þessari niðurstöðu ríkissaksóknara tek ég fagnandi og fæ aftur trú á réttlætinu en núna er það í höndum lögreglunnar að rannsaka þetta mál aftur og þá með öllum gögnum og vitnum málsins,“ hefur blaðið eftir Lindu Gunnarsdóttur, sem kærði árásina.
Atvik voru þannig að Linda sleit sambandi við þáverandi sambýlismann árið 2015 eftir að hafa komist að því að hann hélt framhjá henni. Að hennar sögn kýldi maðurinn hana og sló ítrekað og hrinti henni í gólfið.
Leitaði Linda á bráðamóttöku en samkvæmt áverkavottorði var hún með átta áverka og var meðal annars viðbeinsbrotin.
Linda kærði árásina í fyrra en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákvað í febrúar síðastliðinn að hætta rannsókn málsins, þar sem langt væri um liðið og orð stæði gegn orði. Maðurinn hélt því fram að Linda hefði ráðist á sig og dottið.
„Eftir yfirferð gagna málsins telur ríkissaksóknari rannsókn þess ekki lokið,“ segir í rökstuðningi embættisins til kæru Lindu og lögreglustjóra sagt að „taka málið til rannsóknar og þóknanlegrar meðferðar.“