Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL.
Á næstu vikum og mánuðum verður unnið að uppbyggingu umboðsins hér á landi sem staðsett verður við Sævarhöfða, m.a. með innkaupum á lager og uppsetningu á heimasíðu merkisins hjá BL.

Invicta Electric D2S
Til kynningar fyrir viðskiptavini hefur BL þegar nýskráð fyrstu tvö eintök rafknúna borgarsmábílsins Invicta Electric D2S sem hægt er að kynna sér í sýningarsalnum við Sævarhöfða ásamt því að prófa reynsluakstursbíl. D2S er tveggja sæta smábíll sem er með 17 kWh rafhlöðu og uppgefna drægni allt að 150 km og hentar því vel í hverskyns útréttingar sem þarfir einstaklinga og fyrirtækja kalla á í síauknu mæli.

Til viðbótar við 5 ára ábyrgð er staðalbúnaður D2S meðal annars álfelgur, leðursæti, Bluetooth, bakkmyndavél og fjarlægðarskynjarar að aftan. Verð á Invicta Electric D2S er 2.490.000 kr. Nánar verður greint frá öðrum gerðum farartækja Invicta Electric er nær dregur formlegri kynningu merkisins hjá BL.