„Það er betra að koma einu sinni of oft en að missa af einhverju hættulegu.“
Þar sem að maí mánuður var „Skin Cancer Awareness Month“ birti hún á Instagram síðu Húðlæknastöðvarinnar góðar leiðbeiningar.
„Sortuæxli eru mjög hættuleg krabbamein en algjörlega læknanleg ef þau uppgötvast snemma.“
Ragna Hlín segir að lykillinn að þessu öllu saman sé samt forvörn. Að nota sólarvarnir, passa sig að brenna ekki og forðast ljósabekki.
Ragna segir að það að þekkja stafrófið eins og þau kalla það, geti hjálpað þér að meta fæðingarblettina þína og að greina sortuæxli á frumstigi.

Það sem þarf að meta varðandi fæðingarblettina er ósamhverfa, óreglulegir kantar, litabreyting eða margir litir, stækkar og er stærri en 6 mm og svo breyitingar yfir tíma. Nánari útskýringar má finna á myndunum í færslunni hér fyrir neðan.
„Hafðu samband við húðlækni ef þig grunar breytingar á fæðingarblettum.“
View this post on Instagram