„Ég ætla að byrja bara á því að óska Þórsurum til hamingju. Þeir eiga þetta skilið, það er bara þannig því miður,“ sagði Arnar að leik loknum.
Þórsarar tóku mikið áhlaup undir lok fyrri hálfleiks sem hélt áfram í byrjun seinni hálfleiks þar sem að þeir skoruðu 18 stig í röð. Arnar segir að þetta áhlaup hafi gert hans mönnum ansi erfitt fyrir.
„Þetta áhlaup þarna í öðrum og þriðja gerði okkur mjög erfitt fyrir og í rauninni hvernig þeir opna fjórða leikhluta. Ég held að þeir byrji hann 8-0 eða eitthvað svoleiðis þegar við erum að koma okkur inn í þetta aftur og það svona tók þetta úr höndunum á okkur.“
Arnar hrósaði spilamennsku Þórsara og viðurkenndi það að strákarnir frá Þorlákshöfn hefðu einfaldlega verið betri í seríunni.
„Ég sagði það mjög snemma í vetur að ef það væri eitthvað lið sem ég myndi vilja borga mig inn á til að horfa á þá er það Þór Þorlákshöfn. Þetta er lang skemmtilegasta liðið í deildinni.“
„Þeir voru bara betri en við í seríunni. Þeir fóru illa með okkur í einn á einn aðstæðum sem að við réðum ekki við. Þeir komust á hringinn og því fór sem fór.“
„Ég er samt stoltur af leikmönnunum mínum. Þeir lögðu sig alla fram í vetur á erfiðu ári en þetta er bara svona.“

Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.