Netflix gefur sjaldan upp fjölda spilana fyrir þætti og bíómyndir. Veitan heldur aftur á móti utan um topp tíu lista fyrir vinsælasta efni hvers lands fyrir sig og er hægt að fletta þeim upp á síðum á borð við FlixPatrol.
Á síðunni má meðal annars sjá að Katla hefur ratað inn á slíka lista víða um heim, meðal annars í Suður-Ameríku, Mið-Austurlöndum, Afríku og vitanlega Evrópu.
Einnig má sjá að þáttaröðin rauk upp í fyrsta sætið á Netflix á Íslandi strax eftir frumsýningu og hefur haldið því sæti síðan. Enda hafa þættirnir verið á allra vörum hér á landi.
Þáttaröðin er í öðru til þriðja sæti í Króatíu, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi, Grikklandi, Noregi, Póllandi, Sviss, Úrúgvæ og Svíþjóð. En þættirnir gerast að hluta til í Svíþjóð og fer sænska leikkonan Aliette Opheim með hlutverk í þáttunum.

Vaxandi vinsældir
Þáttaröðin er meðal annars á topplistum í Bretlandi og Ástralíu og datt einnig inn á lista í Bandaríkjunum í gær, sem þykir mjög eftirsóknarvert. Þá fær þáttaröðin að meðaltali 5,6 í einkunnagjöf á Netflix en 7,3 á vefsíðunni IMDb.
Daginn eftir frumsýningu var þáttaröðin á helmingi færri vinsældalistum en hún er nú. Síðustu listar birtust í gær og verður spennandi að fylgjast með vinsældum þáttanna sem virðast aðeins fara vaxandi.
