Samningar milli Reykjavíkurborgar og þriggja stærstu olíufélaganna voru samþykktir á fundi borgarráðs í morgun þar sem samið er um að fækka bensíndælum í borginni um þriðjung.
Ekki er tilgreint nákvæmlega hvenær bensínstöðvunum verður lokað; í fundargerð borgarráðs og tilkynningum borgarstjóra er aðeins talað um að það verði „á næstu árum“.
Meðal þeirra bensínstöðva sem verður lokað eru allar stöðvar í Vesturbænum, sunnan Hringbrautar, ásamt hinni vinsælu stöð N1 við Hringbraut, sem margir þekkja eflaust af skemmtanalífinu en í sama rými er rekinn veitingastaðurinn Subway, sem er opinn allan sólarhringinn og fyllist gjarnan eftir lokun skemmtistaða.
Í grænum fréttum er þetta helst: Borgarráð samþykkti í morgun samninga við þrjú stærstu olíufélögin um þriðjungs fækkun bensínstöðva í Reykjavík á næstu árum. Í staðinn koma íbúðir og hverfistengd þjónusta. Dælum fækkar um 33%. Sjá muninn á kortum. Þráður með myndum. #GrænaPlanið pic.twitter.com/uHCwFEG2no
— dagur@reykjavik.is (@Dagurb) June 24, 2021
Eftir að þeim bensínstöðvum verður lokað sem samið var um verða þá heldur engar bensínstöðvar inni í íbúðarhverfi í Laugardalnum, Hlíðunum eða Fossvogi.
Í staðinn fyrir bensínstöðvarnar á að byggja íbúðir og hverfistengda þjónustu. Allt er þetta hluti Græna plansins svokallaða og loftslagsáætlunar borgarinnar.
Samhliða lokun bensínstöðvanna gefur borgin lóðarvilyrði fyrir fjölorkustöð á Esjumelum og uppbyggingu í Stekkjarbakka 4-6.
Samningarnir voru gerðir við N1, Skeljung og Orkuna og Olís og OB.
Þeim bensínstöðvum sem verður lokað eru:
- Birkimelur 1
- Ægisíða 102
- Álfheimar 49
- Álfabakki 7
- Egilsgata 5
- Hringbraut 12
- Stóragerði 40
- Skógarsel 10
- Skógarhlíð 16