Platan er búin að taka heilt ár í vinnslu, en fyrstu 5 lögin voru tekin upp í stúdíó Dallas í hafnarfirði og byrjuðu upptökur þar í mars 2020. Seinni hluti plötunnar, fjögur lög af níu þ.e.a.s. voru tekin upp af hljómsveitinni sjálfri í Ásólfsskálakirkju undir eyjafjöllum en einnig fór töluvert af upptökum fram á bænum Holt þar sem Valborg sjálf er búsett.

Heildarhljómur plötunnar er eitthvað sem hljómsveitarmeðlimir eru virkilega ánægðir með, en öll lögin fá sinn rétta hljóm að þeirra mati. Það var snillingurinn hann Bjarni Þór Jensson sem sá um að mixa og mastera og svo var það Atli Sigursveinsson sem gerði plötu artworkið sem innsiglar tónheiminn sem hljómsveitin skapar.
Hljómsveitina skipa þau Valborg Ólafsdóttir – Söngur, gítar og píanó. Orri Guðmundsson – Slagverk. Baldvin Freyr Þorsteinsson – Gítar. Elvar Bragi Kristjánsson – Bassi, synth og hljómborð. Plötuumslagið er eftir Atla Sigursveinsson.