Gripið var til aðgerða á Hrafnistu í dag vegna fjölgunar tilfella innanlands. 78 greindust smitaðir innanlands i gær. Grímuskylda er hjá starfsfólki, gestum og öðrum sem koma inn á heimilin.
„Og við erum líka að biðla til gesta sem eru yngri en þrjátíu ára að koma ekki í heimsóknir á meðan að smit eru svona tíð í þeim hópi og svo eru fimmtán ára og yngri óbólusettir. Við teljum að það sé mikilvægt að halda áfram að standa saman og vernda þennan mikilvægasta hóp á meðan við vitum ekki enn hvaða áhrif þetta hefur á bólusetta hópa.“
„Með þessum aðgerðum erum við að reyna að halda lífi íbúanna sem eðlilegustu með því að setja ekki frekari takmarkanir á heimsóknir að minnsta kosti ekki sem stendur,“ sagði Jakobína Hólmfríður Árnadóttir, mannauðsstjóri Hrafnistu.
Halda lífi íbúa sem eðlilegustu
Aðstandendur eru jafnframt beðnir um safnast ekki saman í sameiginlegum rýmum á heimilunum.
Jakobína segir hljóðið í heimilismönnum eftir atvikum en að þeir fagni því að gripið sé til aðgerða til að vernda þennan viðkvæma hóp.
„Þau sem ég hef heyrt í fagna þessu og finnst þetta eðlilegt skref. Auðvitað á meðan að við erum að gera þetta þá erum við að reyna að halda lífi íbúa sem eðlilegustu því það eru aðstandendur, gestir og starfsfólk sem eru með grímur en að öðru leyti ætti líf íbúanna að vera með eðlilegasta hætti.“