Á þeim tíu dögum sem liðið hafa frá því að Rebekka stofnaði hópinn, Tíðahringur bólusettra kvenna gegn C19, sem er lokaður og aðeins ætlaður konum sem fundið hafa fyrir svona aukaverkunum, hafa 690 bæst í hópinn. Þá á Rebekka enn eftir að samþykkja 70 konur sem óskað hafa eftir því að vera bætt í hópinn.
Rebekka tilkynnti sjálf eigin aukaverkanir um miðjan mánuð til Lyfjastofnunar og hafa nú alls 270 tilkynningar borist Lyfjastofnun um röskun á tíðarhring í kjölfar bólusetningar, sem Fréttablaðið greindi frá í dag.
„Ég hvatti til þess inni í hópnum að allar konur myndu gera það sama. Svo ákváðum við að tilkynna til Landlæknis líka. Ég beið með það í nokkra daga og ákvað að stofna undirskriftalista til að senda með og fá sögur kvenna, hvað er það helsta sem er að gerast hjá þeim,“ sagði Rebekka í Bítínu á Bylgjunni í morgun. Undirskriftalistann sendi hún til Landlæknis í gærkvöldi, með fjölda reynslusaga kvenna sem fundið hafa fyrir þessum aukaverkunum.
Ein ólétt sem hefur verið á blæðingum í þrjá mánuði
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, sagði í samtali við mbl.is í morgun að áhugi sé fyrir því á Norðurlöndunum að skoða þessar aukaverkanir betur. Embættið sé meðvitað um þessar aukaverkanir en gat hún ekki svarað því hvort breytingar á tíðarhring í kjölfar bólusetningar gætu haft áhrif til lengri tíma.
„Það er akkúrat það sem við vorum að óska eftir að þetta yrði skoðað,“ segir Rebekka.
Reynsla kvennanna í Facebook-hópnum af aukaverkununum er mjög misjöfn. Sumar konur lýsa því að hafa verið á blæðingum svo mánuðum skiptir. Aðrar hafa ekki farið á blæðingar í fimm mánuði og dæmi eru um það að konur sem eru að ganga í gegn um breytingaskeiðið hafi fengið tíðir á ný.
„Flestar hafa verki í móðurlífi, brjóstaspennu og þreytu og almenn óléttu-einkenni. Flestar eru að glíma við það,“ segir Rebekka.
„Það er ólétt kona í hópnum sem fór í bólusetningu og hefur blætt í þrjá mánuði. Hún er undir læknishöndum þannig að við óskum henni góðs gengis bara. Það eru konur sem hafa misst brjóstamjólk, aðrar sem tala um óeðlileg útbrot og ofsakláða, merjast auðveldlega,“ segir Rebekka.
Hún kallar eftir því að þessar aukaverkanir verði rannsakaðar í ljósi þess að svo margar konur hafi fundið fyrir breytingum á tíðarhring í kjölfar bólusetningar.
„Þótt þetta séu ekki allar alveg eins sögur þá eiga þær allar við okkar æxlunarfæri. Það ber að rannsaka að mínu mati.“
Hægt er að hlusta á viðtalið við Rebekku í heild sinni í spilaranum hér að neðan.