Á fundinum fara Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn almannavarna yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19 faraldursins hér á landi.
Einnig verður Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans á fundinum og fer hann yfir stöðuna á Landspítalanum vegna COVID-19.
Í ljósi fjölda smita í samfélaginu fer fundurinn fram í fjarfundabúnaði.
Fundurinn verður í beinni útsendingu að venju í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi, hér á Vísi og í textalýsingu að neðan.
Uppfært: Fundinum er lokið en hér að neðan má sjá upptöku af honum í heild sinni.
Alla fyrri upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis vegna faraldurs kórónuveirunnar má sjá á sérstakri undirsíðu Vísis. Smellið hér.