Tvö tveggja manna lið keppa í hverjum þætti af Galið. Það lið sem vinnur heldur áfram að keppa við næsta lið og svo framvegis. Í síðasta þætti höfðu tónlistarmaðurinn Ízleifur og umboðsmaðurinn Logi Snær betur á móti tónlistarmanninum Króla og fótbolta- og tónlistarmanninum Loga Tómassyni, eða Luigi.
Nú eru það tónlistarmennirnir Bjarki Ómarsson, eða Bomarz, og Victor Guðmundsson, eða Doctor Victor, sem mæta tónlistarmanninum Tómasi Welding og fótboltamanninum Birki Snæ Sigurðssyni.
Framleiðslufyrirtækið AlbummTV og vefmiðillinn Albumm.is framleiða þessa nýju leikjaþætti í samstarfi við SnorriBros, Vísi og Stöð 2 Esport. Þættirnir voru teknir upp á veitingastaðnum Le Kock í Hafnarstræti.
Þættirnir eru sjö talsins og koma út á fimmtudögum. Meðal fleiri keppenda næstu vikur má nefna landsliðsmanninn og Valsarann Birkir Má Sævarsson og fyrirliða meistaraflokk Breiðabliks Höskuld Gunnlaugsson.
