Róbert Wessman birti myndir frá brúðkaupshelginni sinni. Í kringum hundrað gestir fögnuðu með brúðhjónunum í nokkra daga og voru viðburðirnir hver öðrum glæsilegri. Myndir frá brúðkaupsdeginum sjálfum birtust hér á Lífinu á Vísi fyrr í dag.
Salka Sól kom fólki á óvart og tilkynnti að hún og eiginmaður hennar Arnar eiga von á dreng. Tilkynninguna faldi hún í myndasyrpu á Instagram. Fyrir eiga þau eina stúlku.
Katrín Tanja fagnaði ástinni í brúðkaupi systur sinnar um helgina.
Rúrik Gíslason skoðaði Grænahrygg, sem að margra mati er ein fallegasta gönguleið landsins.
Fasteignasalinn og áhrifavaldurinn Hrefna Dan átti gott helgarfrí á Akureyri.
Eliza Reed forsetafrú fór í sýnatöku eftir ferðalagið til Danmerkur og Svíþjóðar.
Listakonan Rakel Tómas opnaði sýninguna „hvar ertu?“ um helgina.
Fatahönnuðurinn og útvarpskonan Camilla Rut rifjaði upp það helsta frá sumrinu sínu.
Elísabet Gunnars dýfði sér í Seljavallalaug í gær.
Sigga Dögg hélt upp á frumsýningu á nýrri þáttaröð, Allskonar kynlíf.
Íþróttafréttakonan Svava Grétars, eigandi Cava, nýtur lífsins í sólinni með fjölskyldunni.
Tónlistarkonan Bríet steig fram á þrennum tónleikum með Sinfóníunni í Hörpu ásamt rjóma nútímalistamanna.
Flóni var einn þeirra sem kom fram í Hörpu og flutti lög sín í einstökum útsetningum.
Bjarni Ben fjármálaráðherra var ánægður með tónleikana.
Rakel Orra segir að það sé ekki erfitt að njóta.
Kristbjörg Tinna stendur þétt við bakið á sínum manni, landsliðsmanninum Aroni Einari Gunnarssyni.
Förðunarfræðingurinn og vörumerkjastjórinn Erna Hrund blómstrar á meðgöngunni.
Gurrý Jóns og Egill virðast hafa átt smá foreldrafrí á ION hótelinu.
Birgitta Líf eigandi Bankastræti Club er komin heim úr fríinu.
Bubbi birti mynd af sér með Aroni Can í Hörpunni.
Sunneva Einars kíkti út á lífið. Eftir nokkra daga fer hún af stað með eigin sjónvarpsþætti, #SAMSTARF, á Stöð 2 + efnisveitunni.
Hanna Rún dansari er orðin dökkhærð aftur.
Golfarinn Ólafía Þórunn opinberaði nafnið á syninum, Maron Atlas Thomasson.